Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Klúbburinn
Upplýsingar um Ferðaklúbbinn 4x4

Félagsfundur F4x4 mánudagskvöldið 6. september 2010.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Ágætu félagsmenn.
 
Félagsfundurinn mánudagskvöldið 6. september verður haldinn í húsakynnum Skeljungs að Hólmaslóð 10.  Auk innanfélagsmála fáum við heimsókn frá Símanum þar sem rætt verður um arftaka NMT kerfisins sem þjónustað hefur okkur mörg undanfarin ár.  Megin umræðan mun svo snúast um framþróun Kortakerfis Skeljungs og þá möguleika og afsláttarkjör sem það býður upp á.
 
Dagskrá:

Innanfélagsmál.
Arftaki NMT kerfisins - Gylfi Már Jónsson frá Símanum.
Kortakerfi Skeljungs - fyrri hluti.
Kaffi í boði Skeljungs.
Framhaldsumræða um Kortakerfið og þau fríðindi sem því tengjast.

Fundurinn hefst að venju stundvíslega kl. 20:00.
 
Stjórn F4x4.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 02. september 2010 13:16
 

Félagsfundur 6. september 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Fyrsti félagsfundur vetrarins verður haldinn mánudagskvöldið 6. september kl. 20:00.
 
Dagskrá ásamt upplýsingum um staðsetningu verða birtar á vefnum þegar nær dregur fundi.  Félögum til upplýsingar verður þessi fundur ekki haldinn í Mörkinni eins og venja er heldur verður honum fundinn annar staður að þessu sinni.
 
Kveðja.
Stjórn F4x4
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 02. september 2010 12:23
 

Tilboð til félagsmanna

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Okkur hjá Arctic Adventures / Arctic Rafting vitum að ykkur finnst gaman að ferðast og höfum oft unnið með og spjallað við félagsmenn ykkar á ferðum okkar með túristana.

Þess vegna  langar okkur mikið til að bjóða félagsmönnum ykkar góð kjör á rafting ferðum okkar ef bókað er fyrir 4 eða fleiri:

River fun – Flúðasigling í Hvítá (smellið hér til að skoða)

-          Klassísk sigling fyrir fjölskyldur og góða hópa.

-          Erfiðleikastig 2 af 5

 

River Ride – Kanó Sigling í Hvítá (smellið hér til að skoða)

-          Fyrir þá sem vilja meiri spennu á Suðurlandinu, 2 manneskjur per kanó

-          Erfiðleikastig 3 af 5

 

Wonderful west – Flúðasigling í Jökulsá Vestari (smellið hér til að skoða)

-          Núna erum við komin líka á Norðvesturlandið og eru þessar ferðir mjög vinsælar!

-          Skemmtileg fjölskyldu og hópasigling og rosalega falleg leið!

-          Erfiðleikastig 2+ af 5

 

Beast of the East – Flúðasigling í Jökulsá Austari (smellið hér til að skoða)

-          Alvöru á fyrir fólk sem vill gott action!

-          Aldurstakmark 18 ára

-          Stuðsigling fyrir fólk sem vill virkilega eiga krefjandi skemmtun!

-          Erfiðleikastig 4+ af 5

 

Það eina sem ykkar félagsmenn þurfa að gera til að fá þennan prýðindis afslátt, er að sýna okkur félagsskírteini, og hringja á undan til að staðfesta að það sé laust.

 

Endilega komið þessu áfram á félagsmenn ykkar svo þau geta nýtt sér þetta tilboð.

 

Vonumst til að sjá sem flest ykkar í sumar!

Síðast uppfært: Föstudagur, 23. júlí 2010 12:57
 

Sumarhátíð F4x4 verður 17. júlí á Þórisstöðum í Svínadal

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Sumarhátíð Ferðaklúbbsins 4x4 verður haldin með pomp og pragt á Þórisstöðum í Svínadal 17. júlí. Farið er yfir Dragann frá Hvalfirði í áttina að Skorradal til að komast á Þórisstaði í Svínadal eða til hægri áður en farið er yfir Borgarfjarðarbrú (að sunnan). Hátíðin sjálf verður 17. júlí, en tjaldstæði er frátekið á ákveðnum stað fyrir félagsmenn Ferðaklúbbsins frá 16. júlí til 18. júlí.

Tjaldstæðin eru ókeypis fyrir félagsmenn frá föstudegi til sunnudags, en greiða þarf kr. 400 á sólarhring fyrir rafmagn. Hægt er að fá gistingu í svefnpokaplássi (kr. 3000 fyrir manninn í tveggja manna herbergi, kr. 4000 fyrir einn í herbergi).

Hægt er að spila golf (10 eða fleiri saman fá afslátt) og veiða í vatninu gegn gjaldi (frítt fyrir aðila með Veiðikortið). Margar skemmtilegar gönguleiðir eru á svæðinu. Seinagengið (Hjörtur og félagar) hefur umsjón með framkvæmd á dagskrá. Heimasíða Þórisstaða með nánari upplýsingum og vegakorti er á vefsíðunni http://thorisstadir.is/)

Dagskrá laugardaginn 17. júlí
Kl. 10:00 - Hátíðin sett
Kl. 11:00 - Bíltúr í nágrenninu (óvissuferð)
Kl. 15:00 - Leikir og fjör fyrir alla fjöldskylduna
Kl. 18:00 - Kveikt í grillinu (gert ráð fyrir að gestir komi með á grillið)
Kl. 18:30 - Sameiginlegt borðhald
Kl. 22:00 - Hljómsveitin Króm með létt barna- og unglingaball í samkomuhúsinu
Kl. 23:30 - Hljómsveitin Króm með dansleik fyrir fullorðna í samkomuhúsinu

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 21. júlí 2010 09:40
 

Fundagerð aðalfundar F4x4

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Ágætu félagsmenn.
 
Fundagerð aðalfundar F4x4, sem haldinn var 29. maí síðastliðinn, er komin inn á vefinn undir þráðinn „Innanfélagsmál“.  
 
Stjórn félagsins hefur skipt með sér verkum:
 
a) gjaldkeri er Guðmundur Sigurðsson,
b) ritari, og jafnframt varaformaður, er Logi Ragnarsson,
c) meðstjórnendur eru Hafliði S. Magnússon og Óskar Erlingsson.  
 
Sveinbjörn Halldórsson var endurkjörinn formaður félagsins á aðalfundinum.

Varamenn í stjórn, kjörnir á aðalfundi eru Ágúst Birgisson og Kristján Gunnarsson.


Stjórn mun hitta fulltrúa nefnda félagsins á næstunni þar sem erindisbréf einstakra nefnda verða afhent og starfið framundan tekið til umræðu.
 
Stjórn F4x4

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. júní 2010 10:40
 


Síða 1 af 4

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010