Ágætu félagsmenn.
Félagsfundurinn mánudagskvöldið 6. september verður haldinn í húsakynnum Skeljungs að Hólmaslóð 10. Auk innanfélagsmála fáum við heimsókn frá Símanum þar sem rætt verður um arftaka NMT kerfisins sem þjónustað hefur okkur mörg undanfarin ár. Megin umræðan mun svo snúast um framþróun Kortakerfis Skeljungs og þá möguleika og afsláttarkjör sem það býður upp á.
Dagskrá:
Innanfélagsmál.
Arftaki NMT kerfisins - Gylfi Már Jónsson frá Símanum.
Kortakerfi Skeljungs - fyrri hluti.
Kaffi í boði Skeljungs.
Framhaldsumræða um Kortakerfið og þau fríðindi sem því tengjast.
Fundurinn hefst að venju stundvíslega kl. 20:00.
Stjórn F4x4.






Sumarhátíð Ferðaklúbbsins 4x4 verður haldin með pomp og pragt á Þórisstöðum í Svínadal 17. júlí. Farið er yfir Dragann frá Hvalfirði í áttina að Skorradal til að komast á Þórisstaði í Svínadal eða til hægri áður en farið er yfir Borgarfjarðarbrú (að sunnan). Hátíðin sjálf verður 17. júlí, en tjaldstæði er frátekið á ákveðnum stað fyrir félagsmenn Ferðaklúbbsins frá 16. júlí til 18. júlí. 