Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Fréttir

Ný félagsskírteini

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Í meðfylgjandi viðhengi eru upplýsingar um nýja tegund af félagsskírteinum sem Skeljungur hf samstarfsaðili ferðaklúbbsins 4x4 hefur útbúið.

Sérstaklega viljum við benda á auka afslátt sem Skeljungur veitir í tilefni af sumarhátíð klúbbsins sem verður að Þórisstöðum í Svínadal, helgina 16-18 júlí.  Þeir sem vilja greiða eldsneyti með beinhörðum peningum þurfa að láta strauja afsláttarkortið fyrir greiðslu til að fá aukaafslátt, hinir nota staðgreiðslukortið.

Attachments:
Download this file (Ferðaklúbburinn 4x4- auglýsing.pdf)Ferðaklúbburinn 4x4- auglýsing.pdf[Ný félagsskirteini][ ]321 Kb
Síðast uppfært: Föstudagur, 13. ágúst 2010 19:43 Nánar...
 

Fleiri bækur frá Jóni G. Snæland að koma út þessa dagana

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Jón Garðar Snæland eða betur þekkur á f4x4.is sem Ofsi er búinn að senda frá sér fleiri bækur.

Þrjár þeirra eru á ensku og ein á íslensku. Íslenska bókin heitir Fjallaskálar á íslandi og fjallar um u.þ.b 400 skála í óbyggðum íslands. Ensku bækurnar eru laugarbók sem heitir Thermal polls in Iceland, Huts and lodges in Iceland og loks leiðarbók fyrir erlenda ferðamenn sem heitir Off the beaten track in Iceland. Íslenska skálabókin og laugabókin eru komnar í verslanir og enska skálabókin kemur í verslanir 18 júní. Leiðarbókin kemur síðan aðeins seinna.  - Sjá meira hér


Síðast uppfært: Miðvikudagur, 16. júní 2010 09:25
 

Sumarhátíð f4x4

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Kæru félagar - sumarhátíðin 2010

Sumarhátíð f4x4 verður haldin með pompi og prakt á Þórisstöðum í Svínadal ( sjá heimasíðu Þórisstaða http://thorisstadir.is/) helgina 16. -18. Júlí dagskráin verður auglýst síðar.

Beztu kveðjur Seinagengið Léttir

 

Safetravel verkefnið

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Þriðjudaginn 8. júní var skrifað undir samstarfssamning þeirra sem koma að Safetravel verkefninu, sem Slysavarnafélagið Landsbjörg stýrir. Verkefnið er þrennskonar, útgáfa tímarits á þremur tungumálum, heimasíðan www.safetravel.is, sem opnuð var 8, júní og hálendisgæsla björgunarsveitarmanna.

Ferðaklúbburinn 4x4 er einn samsamstarfsaðila að verkefninu en myndin er tekin á undirskriftarathöfninni sem fór fram við Krísumvík í gær.  Rétt er að taka fram að F4x4 styður verkefnið ekki með fjárframlögum heldur leggur til ýmsa sérfræðiþekkingu sem gagnast verkefninu á ýmsan hátt.
 
Stjórn F4x4

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. júní 2010 12:05
 

GPS gagnaöflun úr stórferð 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Nú í maí er ætlunin að reyna að ná saman sem allra mest af gps ferlum sem náðust á tæki og tölvur þátttakenda í ferðrinni "Í hjólför aldamótanna"  sem farin var í mars síðastliðinum. Meiningin er að bæta því sem berst af ferlum í gagnabanka klúbbsins,  sem heimild um þessa ferðahelgi sem hófst á fimmtudeginum 18. mars 2010.

Best er að fá ferlana eins og þeir koma óunnir beint úr tækjunum sem viðhengi á netfangið;

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Síðast uppfært: Sunnudagur, 02. maí 2010 17:36
 


Síða 1 af 9

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010