Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Félagsfundur 1. febrúar 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Sveinbjörn setti fundinn en sú nýbreytni hefur verið tekin upp að nefndir innan klúbbsins koma til með að sjá um dagskrá félagsfundar F4x4. Var þessi fundur sá fyrsti með þessu fyrirkomulagi í umsjá Umhverfis- og Skálanefndar.

Sveinbjörn las upp tilkynningu frá stjórn F4x4 er varðar banaslysið á Langjökli 30. janúar síðastliðinn. Þarna var um að ræða eiginkonu Kristjáns Gunnarssonar, stjórnarmanns í Ferðaklúbbnum 4x4, Halldóru Benediktsdóttir ásamt sjö ára gömlum syni þeirra hjóna. Sendum við Kristjáni og hans fjölskyldu, ásamt öðrum þeim sem um sárt eiga að binda, okkar dýpstu samúðarkveðjur.

Innanfélagsmál

Stjórnin
Sveinbjörn segir frá störfum stjórnar. Þau hafa aðalega farið í þessi umhverfismál s.s. stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og bréf frá UST sem og lokanirnar á vefsíðu klúbbsins. Spjallinu á vefsíðu F4x4 verður lokað þrátt fyrir að þetta hafi lagst misvel í menn. Jafnframt verður haldið áfram með að loka á aðgang ógreiddra félagsmanna. Skrifaðgangi að auglýsingum verður haldið áfram opnum fyrst um sinn. Árétta skal að einungis er verið að takmarka aðgang að skrifum á vefsíðuna en almenningur getur áfram lesið innihald síðunnar fyrir utan innafélagsmál. Sveinbjörn kallar eftir umræðum úr sal um lokunina. Spurt er um rökin fyrir því að loka síðunni. Sveinbjörn svarar því m. a. til að þegar eitthvað gerist á vefnum og um utanaðkomandi aðila er að ræða þá er erfitt að ná í þá og eiga við þá. Hann hafi jafnvel fengið þau svör að honum komi það ekkert við hvað viðkomandi skrifi á vefinn. Það virðist sem félagsmenn gæti sín betur í skrifum sínum á vefinn og auðveldara að ná í þá ef þörf krefur. Það er kostnaður sem fylgir því að reka vefinn og hvers vegna á fólk að vera borga félagsgjöld ef það fær það sama frítt. Þetta eru fyrstu skref stjórnar í að endurheimta eignir klúbbsins sem eru t.d. vhf kerfið. Ferðaklúbburinn borgar leyfisgjöldin fyrir vhf kerfið sem þýðir að greiddir félagar í F4x4 borga vhf stöðvargjöldin fyrir þá sem ekki eru að borga félagsgjöld. Við sem félagsmenn eigum að hafa eitthvað umfram aðra s. s. að geta skrifað á vefinn. Utanfélagsmenn geta samt sem áður fengið skrifin sín birt ef nauðsyn krefur með því að hafa samband við stjórnina. Hátt á fjórðahundrað aðilar greiddu félagsgjöldin sín í janúar, þar af voru um 20 nýir félagar.

Umhverfisnefnd
Magnús formaður les bréf sem barst frá Halldóru Hjörleifsdóttur sem er í nefnd um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum. Innihald bréfsins var á þá leið að fyrsti fundur um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum var haldinn 21. janúar s.l. og var hann meira svona til að upplýsa menn um hver staðan væri og hvað væri verið að spá. Nefndarmenn eru misjákvæðir varðandi þessi stækkunaráform sérstaklega þar sem ekki er alveg séð hver tilgangurinn með þeim er. Málin voru rædd og var ákveðið að kalla inn alla hagsmunaraðila er tengjast svæðinu og ræða málin við þau og var F4x4 nefnt. Stefnt er að funda með þessum aðilum í febrúar og vonandi gengur það eftir.

VSO ráðgjöf er að vinna að verkefni um vegmerkingu slóða og smávegagerð og hefur leitað til Freys Jónssonar með aðstoð við það og leggst þetta verkefni vel í hann.  Skilgreiningin á smávegum felst í því að vernda vonda vegi. Það er vegi sem hafa smá hindranir sem hafa leitt til þess að menn hafa ekið framhjá þeim með tilheyrandi aukaförum.  Hingað til hefur það verið viðhorf Vegagerðarinnar að hækka og byggja upp alla vegi en nú er verið að tala um að laga vegina og að þeir haldi sínum karakter áfram.

Ferðafrelsisnefnd
Didda (Sæbjörg) úr Ferðafrelsisnefndinni kynnti nefndina en Ferðafrelsisnefnd er stjórnskipuð nefnd. Helsta hlutverk hennar er að verja frelsi almennings til að ferðast um hálendi Íslands. Nefndin hefur verið að hittast á hálfsmánaðar fresti, annan hvorn þriðjudag.

Helstu verkefni
Ferðafrelsisnefnd hefur á undanförnum mánuðum sent inn tillögur um ýtarlegri skilgreiningar á umferðalögum. Ritað greinar um lokanir einkaaðila á vegslóðum og gert athugasemdir við þingsályktunartillögu um Landnýtingaráætlun.

Þá hefur nefndin fylgst með þeim sveitarfélögum sem eiga land að miðhálendi og þurfa að skila aðalskipulagi sínu til umhverfisráðuneytis á næstu mánuðum. 

Ferðafrelsisnefnd, stjórn og Umhverfisnefnd fylgjast einnig grannt með áformum um stækkun á friðlandinu í Þjórsárverum og hefur óskað eftir aðkomu fulltrúa F4x4 að því ferli.

Nefndin hefur líka verið að fylgjast með Vatnajökulsþjóðgarði og þeim akstursleiðum sem hugsanlega á að loka þar, sem og öðrum hugmyndum sem poppa upp hjá þjóðgarðsfólki

Reykjanesfólkvangur hefur líka komið inn á borð til Ferðafrelsisnefndar og skipulagið þar en hann hefur reyndar verið meira í vinnslu hjá Umhverfisnefnd F4x4.
 
Ferðafrelsisnefndin hefur einnig boðið fólki sem henni þykir skipta máli fyrir vinnuna hjá nefndinni á fundi. Í janúar síðastliðinn mætti á fund með nefndinni Katrín Theodórsdóttir sem er í starfshópi sem vinnur að endurskoðun á lögum um náttúruvernd.
 
Stefnt er á að að ná viðtölum við m.a. Umhverfisráðherra og vonandi einhverja fleiri góða sem geta talað okkar málstað í hæstu hæðum.

Stefnan er sú að skipta nefndinni niður í hópa  og hver hópur hafi yfirumsjón með ákveðnum þáttum. Og að menn mega hafa skoðanir á öllu líka því sem ekki tengist þeim starfshópi sem maður fellur inn í.

Ferðafrelsisnefndin er að auglýsa eftir fólki í nefndina og er hún pínu veik fyrir að ná í tengiliði út um allt land.

Mikill tími hefur líka farið í að samræma skoðanir, lesa pósta, netsíður, googla og skilja stjórnsýsluna

Litlanefndin
Ólafur formaður segir frá því að starf nefndarinnar er komið í fullan gang eftir hlé í Desember. Nefndin fór í sína fyrstu ferð núna 16. janúar og mun það hafa verið stæðsta ferðin frá stofnun nefndarinnar. Loka þurfti fyrir skráningu þar sem um 55 bílar voru skráðir en ekki var nóg framboð á fararstjórabílum til að halda utan um stærri hóp. Farið var upp á Langjökul hjá Jaka. Það sem menn lærðu á þessari ferð var að kunnáttu fólks í GPS er ábótavant. Næsta ferð verður 20. febrúar en ekki er búið að ákveða hvert farið verður. Ferðin sem fyrirhuguð er 20. mars verður hnikað til þar sem hún skarast á við stóru ferðina, Í hjólför aldamótanna. Ólafur ítrekar að Litlanefndin sé alltaf að leita að fleiri fararstjórum.

Skálanefnd
Logi Már formaður segir frá því að loksins er gsm “lykla” kerfið farið að virka. Á eftir að fínpússa það enn frekar. Til að opna Setrið þarf að hringja í bæinn og er opnunin á skálanum framkvæmd í gegnum gsm síma. Samúel, Páll og Sólmundur hafa séð um uppsetninguna á kerfinu og kann hann þeim bestu þakkir fyrir.

Vestfjarðardeild
Ólafur Hallgrímsson segir frá því að Vestfjarðardeildin er komin með aðstöðu til gistingar á sínu heimasvæði yfir vetrartímann þ.e. frá 15. febrúar til 15. maí. Þeir náðu samningum við Hótel Reykjanes um afnot af aðstöðu sem þeir geta ráðstafað en hún er ekki stór. Ef þörf er á fleiri herbergjum þá er hægt að leigja þau af Hótelinu sjálfu. Vestfjarðardeildin mun kynna þetta enn frekar fyrir félagsmönnum á vefsíðu F4x4 fljótlega.

Kvennaferðin
Í fyrra var farin óvissuferð en nú er engin óvissa og á að fara í Bása í Goðalandi 26.-28. Febrúar.  Skálinn tekur 60 manns en skráðar eru 47-48 konur í ferðina. Þátttökuskilyrði miðast við 35” fyrir minnstu bílana og þaðan af stærra. Sameiginleg máltíð verður á laugardeginum en einnig verður gert eitthvað óvænt og skemmtilegt. Stóð til að loka fyrir skráningu í dag 1. febrúar en henni verður haldið áfram opinni aðeins fram eftir. Skráningin er á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Stefnt er á að þátttökugjaldið fari ekki yfir 7.000 kallinn.

Gengjakynning - Ofurgengið
Kári Rafn ofurgengismaður kynnir  ofurgengið http://ofurgengid.blogcentral.is/sida/2071824/
Gengið var stofnað upp úr 2003-4 þegar nokkrir ferðafélagar úr Rangárvallarsýslunni ákváðu að kalla sig eitthvað. Fjöldi meðlima fer eftir því hvað margir eru að fara í ferðir saman en gengið hefur ekki farið í ferð í yfir 2 ár þannig að úr vöndu er að ráða. Meðlimir munu þó vera á milli 20-30 manns. Landamerki Ofurgengisins eru frá Þjórsá og vestur fyrir Vík. Markmið gengisins eru m.a. að tala helmingi meira en framkvæmt er. Fara í sem flestar jeppaferðir og hafa gaman af þeim. Þú ert ekki fastur nema þú þurfir utanaðkomandi aðstoð. Bull og vitleysa er fullkomlega lögleg og því meira bull því meira gaman, o.fl.. Sumir í genginu hafa það aðalega fyrir stafni að skipta oft um vélar og boddy á sama bílnum og eru farnir að ná ágætis millitíma við þennann gjörning.

Ferðin á Suðurskautslandið
Gísli og Freyr Jónssynir sögðu frá ferð sinni til Suðurskautslandsins. Þeir bræður gerðu ferðalaginu góð skil í máli og myndum og var kynningin einstaklega áhugaverð á allan hátt.


 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 21:38  

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010