Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

auglýsing ætti að vera hér

Ferðaklúbburinn 4x4

Félagsfundi Vesturlandsdeildar 12. apríl frestað

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Félagsfundi Vesturlandsdeildar 12. apríl verður frestað þangað til á morgun eða næsta mánudag þar sem Vatnajökulsfarar hafa ekki skilað sér heim sökum veðurs. En þeir eru á heimleið núna og koma heim í nótt.

Sent verður sms og fólk látið vita nánar varðandi fundinn.

Kveðja
Stjórn Vesturlandsdeildar

 

Frábær GPS ratleikur 27. mars 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Enn einu sinni hefur Litlanefnd komið með nýjan flöt á þálfun fyrir nýliða, en laugardaginn 27. mars stóð nefndin fyrir GPS ratleik sem ætlað var að upplýsa jeppafólk um notkun þessa ómissandi tækis í ferðum á hálendinu. Það voru 6 hópar sem lögðu af stað frá Skeljungi við Vesturlandsveg þennan bjarta laugardagsmorgun og hver hópur fékk sína fyrstu GPS punkta, en enginn  hópur var með alveg sömu leið.  

Myndasafn 1 - Guðmundur G. Kristinsson
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 13. apríl 2010 12:49 Nánar...
 

Opinn félagsfundur á Akureyri 5. mars 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Elmar Sigurgeirsson formaður Eyjafjarðardeildarinnar stýrði fundinum en mættir voru 50 félagsmenn sem komu frá Eyjafjarðardeild, Skagafjarðardeild, Húsavíkurdeild og Austurlandsdeild

Erindi frá Eyjafjarðardeild. Erlendur Bogason kafari var með mjög áhugaverðan fyrirlestur í máli og myndum um neðansjávarstrýtur á botni Eyjafjarðar. Til að gera sér einhverjar hugmyndir um stærðarhlutföll þá er Strýtan við Ystuvík t.d. 50m há 90m í þvermáli og það streymir um 1000 lítrar af heitu vatni frá henni. Strýturnar eru einu náttúrufriðaðar minjar á hafsbotni við Ísland og er mikið verið að rannsaka þær. Farið var út í það að merkja eina strýtuna með bauju þannig kafarar eigi auðvelt með að finna hana og þar af leiðandi er engin ásókn í hin svæði. Betra að fórna einum stað til að vernda hina. Þeir sem vilja kynna sér þetta eða skoða stórkostlegar myndir af þessu fyrirbæri geta kíkt á inn á síðuna strýtan.is.
Nánar um fundinn.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 16. mars 2010 12:00 Nánar...
 

Félagsfundur Húnvetningadeildar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Kæru félagar næsti fundur er fimmtudagskvöld 11 Mars á  veitingastaðnum pottinum og pannan

Blönduósi kl 20,30 Nyir félagar velkomnir  ræðum næstu ferðir t,d 18-20 mars.

 

Myndasöfnun, myndir í félagsheimilið

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Sælir félagar

Í fyrsta skipti í sögu Ferðaklúbbsins 4x4 hafa félagsmenn aðgang að félagsaðstöðu sem klúbburinn ræður sjálfur yfir. Nú á að gera átak í að safna myndum úr sögu klúbbsins og ferðum félagsmanna. Fyrst um sinn langar okkur til að fá myndir frá byggingu Setursins og innan úr Setrinu(smella á nánar)

 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 25. mars 2010 09:17 Nánar...
 

Í hjólför aldamótanna

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Aldamótaferðin 2000Nú fer að líða að því að stórferð 4x4 klúbbsins hefjist. Ferðin mun hefjast formlega hjá Bílabúð Benna 18. mars næstkomandi kl 11:00. Þá mun Benni bjóða ferðalöngum upp á léttan hádegisverð áður en að lagt er í hann og eflaust verður eitthvað fleira í boði. Heimboðið hjá Bílabúð Benna stendur frá kl 11 – 13.

 

Að heimboðinu loknu halda hóparnir  svo af stað, hver eftir sínum hentugleika, en þó með viðkomu á Select við Vesturlandsveg þar sem í gangi verða sértilboð í tilefni ferðarinnar .  

 

Fyrsta kvöldið dreifast ferðalangar í skálana á Sprengisandi. Einhverjir hópar ætla  þó  að gista í Hrauneyjum en hálendismiðstöðin þar hefur gefið ferðalöngum tilboð í kvöldmat og gistingu.

Nánari upplýsingar um ferðareglur og ferðaplanið er að finna hér og einnig neðar á síðunni undir Attachments:  Í hjólför aldamótanna4.pdf

Leiðir sem að hægt er að nota til viðmiðunar má nálgast hér neðar á síðunni undir attachements,   (Athugið að búið er að uppfæra GPSskrár. Þær verða ekki uppfærðar aftur, en ekki hægt að útiloka að viðaukar bætist við).    Routs2 hefur verið uppfærð í Routs3 þrátt fyrir það sem stendur hér á undan. Einnig hefur góður félagsmaður Convert-að Track2 fyrir Ozi Explorer notendur. Síðan hefur bæst við í viðbót skrá að austan

Þátttakendalista ásamt upplýsingum um gististaði og VHF rásir mun verða hægt nálgast hér neðar á síðunni undir Attachments síðar.

 

Mánudaginn 15. Mars kl 20 verður haldin undirbúningsfundur fyrir ferðina í húsnæði 4x4. Þar verða afhentir miðar til að merkja bílana með og þátttakendum gefst kostur á að fá allar þær upplýsingar sem þeir þarfnast.

Eldri frétt um sömu ferð

______________________________

Undirbúningsnefnd

Síðast uppfært: Sunnudagur, 02. maí 2010 16:06
 


Síða 7 af 18

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010