- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
Aðalfundarboð Ferðaklúbbsins 4x4 (F4x4)
11 maí 2012
Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4x4 verður haldinn mánudaginn 21.maí í sal klúbbsins að Eirhöfða 11, skemmu 3. Fundurinn hefst kl 20:00. Rétt til setu á fundinum hafa allir skuldlausir félagar og skulu þeir framvísa gildu félagsskírteini. Dagskráin er skv. lögum félagsins: Setning fundar og dagskrá kynnt. Kosning fundarstjóra og...
Lesa nánarUppgræðsluferð 2012
05 maí 2012

Umhverfisnefnd Ferðaklúbbsins 4x4 er að skipuleggja uppgræðsludagí samstarfi við Hekluskóga. Við tökum helgina 8-10 júní til verksins, en aðalvinnudagurinn er laugardagurinn 9. júni. Farið verður að Núpsskógi og Þórðarholti í Þjórsárdalnum, enþar hefur Ferðaklúbburinn 4x4 komið að uppgræðslu undanfarin ár. Nú er um að gera að taka helgina...
Lesa nánarBjórkvöld föstudaginn 4. maí
30 apr 2012
Næsta föstudag verður haldið bjórkvöld í húsakynnum félagsins að Eirhöfða 11. Bjórinn verður seldur á vægu verði eins og vant er. Húsið opnar kl. 20:30 og mun hófið standa allt til því lýkur :-/ Um að gera að láta sjá sig á þetta síðasta bjórkvöld á yfirstandandi...
Lesa nánarMyndakvöld Litlunefndar
25 apr 2012
Myndakvöld Litlunefndar verður á opnu húsi á morgun, fimmtudaginn 26. apríl í félagsheimili Ferðaklúbbsins 4x4. Húsið opnar kl. 20:00 og eru allir velkomnir. Allir sem fóru í afmælisferð Litlunefndar í Landmannalaugar eru hvattir til að mæta með myndir úr ferðinni. Þetta er síðasta myndakvöld Litlunefndar á þessu...
Lesa nánarAðalfundur Eyjafjarðardeildar
23 apr 2012
Aðalfundur Eyjafjarðardeildar 2012 verður haldinn í húsnæði Bjsv Súlna við Hjalteyrargötu þann 8. maí kl. 20.00Dagskrá:Venjuleg aðalfundarstörf Önnur málStjórn Eyjafjarðardeildar
Lesa nánarVirðum lokanir Vegagerðarinnar
22 apr 2012
Umhverfisnefnd f4x4 vil minna ferðalanga á að Vegagerðin hefur lokað flestum hálendisvegum vegna aurbleytu. Sjá nánar á korti Vegagerðarinnar Þá hefur Umhverfisstofnun einnig birt áminningu um lokanir vegna aurbleytu inn á vef UST Virðum lokanir – vinnum með náttúrunni. Umhverfisnefnd f4x4
Lesa nánarAfmælisferð Litlunefndar
22 apr 2012
Að morgni fimmtudagsins 19. apríl s.l. hittust eigendur um 60 jeppa á Stöðinni við Vesturlandsveg. Tilefnið var 10 ára afmlisferð Litlunefndar í Landmannalaugar. Fyrsta ferð Litlunefndar var einmitt farin í Landmannalaugar í mars 2002. Eins og venja er var hópnum skipt í minni hópa og hélt...
Lesa nánarEyjafjarðardeild félagsfundur
29 mar 2012
Félagsfundur Eyjafjarðardeildar verður haldinn þriðjudaginn 3.apríl í húsnæði Bjsv Súlna við Hjalteyrargötu. Hefst fundurinn kl. 20.00 Dagskrá: Erindi nefnda Fræðslupistill Myndasýningar Kaffiveitingar Önnur mál
Lesa nánarFélagsfundur F4x4
29 mar 2012
Næsti félagsfundur F4x4 verður mánudagskvöldið 2. apríl, kl. 20:00. Fundarstaður er Hótel Natura (Loftleiðir). Dagskrá Innanfélagsmál Ferðasaga - Kvennaferð F4x4 Ferðasögur - Stórferð F4x4 Kaffihlé verður um 21:00 Veitt verða verðlaun fyrir bestu ferðasöguna. Stjórnin
Lesa nánarÖruggari ferðamennska á jeppum og vélsleðum.
28 mar 2012
Safetravel.is og Sjóvá bjóða jeppa- og vélsleðamönnum á fyrirlestra sem bera nafnið Öruggari ferðamennska á jeppum og vélsleðum. Farið er í helstu atriði sem geta farið úrskeiðis og hvað helst þarf að hafa í huga til að forðast óhöpp. Fyrri fyrirlesturinn fer...
Lesa nánarSumarhátíð Ferðaklúbbsins 4x4
28 mar 2012
Sælir félagar. Takið helgina 6-8 júlí frá þar sem sumarhátíð Ferðaklúbbsins 4x4 verður haldin hátíðleg á stórglæsilegu tjaldsvæði Grindvíkinga. Á laugardeginum 6 júlí verður ýmis afþreying fyrir börn og fullorðna, farin verður jeppaferð um Reykjanesið og um kvöldið verður sameiginlegt grill og kvöldvaka. Uppl. um tjaldsvæði Grindavíkur http://www.visitgrindavik.is/visit.jsp?a=v&t=gisting&id=5719&lang=is Uppl. um áhugaverða staði...
Lesa nánarEkki aka utan vega
26 mar 2012
Stjórn klúbbsins hefur sent frá sér meðfylgjandi tilkynningu.
Lesa nánar12 kr afsláttur í 4 daga hjá Skeljungi
22 mar 2012
Í tilefni Stórferðar Ferðaklúbbsins 4x4 býðst félagsmönnum í F4x4 12 kr afsláttur á bensíni og díesel hjá Orkunni og Skeljungi í fjóra daga frá og með í dag. Greiða þarf með staðgreiðslukorti Skeljungs, sem jafnframt er félagsskírteini í Ferðaklúbbnum, eða orkulyklinum.
Lesa nánarMarsferð Litlunefndar 2012
18 mar 2012
Laugardaginn 17. mars fór Litlanefndin í mánaðarlega dagsferð sína. Í ferðinni voru um 50 bílar í 6 hópum, þar á meðal hópur frá starfsmannafélagi Strætó. Stefnan var tekin á Skjaldbreiðarsvæðið og var ákveðið að breyta svolítið til í þetta sinn og fara sunnanfrá í stað...
Lesa nánarSetrið, blað um jeppamennsku og ferðafrelsi
08 mar 2012
Í dag fimmtudaginn 8. mars dreifðum við blaðinu okkar Setrinu í 90.000 eintökum í hvert hús á höfuðborgarsvæðinu og til áskrifenda Moggans um land allt. Að auki fá allar deildir samtals um 5.000 eintök til eigin dreifingar. Setrið er 8 bls. í dagblaðsbroti og fjármagnað með...
Lesa nánarLitlanefnd í Kerlingarfjöll
20 feb 2012
Laugardaginn 18. febrúar s.l. lögðu um 30 bílar á vegum Litlunefndar frá Stöðinni við Vesturlandsveg. Skeljungur bauð 10 kr. afslátt af eldsneyti í tengslum við þessa ferð og erum þeim færðar bestu þakkir fyrir. Hópnum var skipt í þrennt. Tveir hópar vorum með bíla frá...
Lesa nánarStórferð 2012 - Dyngjufjalladalur - Langjökull (Mývatn 2012)
17 feb 2012
Búið er að opna fyrir skráningu í Stórferðina 2012. Það þarf að skrá inn nafnið á ferðahópnum en þeir sem eru ekki í neinum hóp, skrái sig í hópin STAKUR. Meðfylgjandi er viðhengi (PDF) yfir ferðaáætlun og einnig eru viðhengi með dæmi um leiðir sem hægt...
Lesa nánarStórferð F4x4 í mars 2012
14 feb 2012

Fyrirhugað er að efna til stórferðar 22. - 25. mars 2012. Meiningin er að fara nokkuð krefjandi leið eins og venja er, en leiðin hefur þó ekki verið valin en nokkrir möguleikar eru til skoðunar. Enn má senda inn hugmyndir varðandi ferðina á stjorn@f4x4.is, (sérstakt...
Lesa nánarEyjafjarðardeild fyrirlestur
14 feb 2012
Félagar úr Hinu Mikla Heimskautafélagi ætla að halda fyrirlestur um ferð þeirra um leiðangur þeirra um norðurslóðir Kanada fyrir okkur í Eyjafjarðardeild. Verður hann í húsnæði Bjsv Súlna við Hjalteyrargötu þann 21. febrúar nk og hefst hann kl. 20.30. Félagar eru hvattir til að mæta. Stjórn...
Lesa nánarLitlanefnd fær viðurkenningu frá Félagi heyrnarlausra
10 feb 2012
Föstudaginn 10. febrúar s.l. var Litlunefnd Ferðaklúbbsins 4x4 veitt viðurkenning fyrir frumkvöðlastarf í þágu heyrnarlausra, en eins og flestir félagsmenn vita hefur Litlanefndin átt í góðu samstarfi við heyrnarlausa og margir þeirra komið með okkur í ferðir. Litlanefndin er stolt og ánægð að hafa fengið þessa...
Lesa nánar







